Leiga á veislusal 

Við bjóðum upp á fallegan veislusal í stórbrotnu umhverfi. Tilvain fyrir hverskyns fögnuði, fermingar, skírnir og afmæli. Nú eða fundarhöld og minni ráðstefnur.


Salurinn er bjartur og fallegur. Í honum er myndvarpi og hljóðkerfi til afnota. Auðvelt að tengja í tölvu.


Ef veitingar eru bókaðar með salnum, þá fellur gjald fyrir salinn niður.


Sjá veitingarseðil

Leiga á sal og hóteli

Þegar um stærri viðburði er að ræða, mælum við oft með því að leiga salinn ásamt gistingu á hótelinu. Það eru ýmsir möguleikar fyrir hendi.


Ef veislan er minna lagi eða ef aðeins hluti veislugesta vilja gista á hótelinu, gefum við gott tilboð í herbergin fyrir gestina. Þá eru aðrir gestir á hótelinu en þið eruð með salinn fyrir ykkur. Tillit þarf að taka til annara gesta hótelsins.


Ef gert er ráð fyrir að veislugestir fylli 15 herbergi eða fleiri þá bjóðum við upp á einkasamkvæmi á hótelinu. Þá eru aðeins gestir veislunnar á hótelinu og því ekkert tillit sem þarf að taka til aðra gesta. Þessi möguleiki er tilvalin fyrir brúðkaup, stórafmæli, árshátíðir, jólahlaðborð og aðra stærri viðburði.



Senda fyrirspurn
Share by: